Beint í meginmál
KATRÍN ÍSFELDHafa samband
Eldhús í Súluhöfða með vínrauðri Arrital eyju, koparljósum og útsýni yfir voginn

Katrín Ísfeld innanhússarkitekt FHI

Skipulag, innréttingar, efnisval og lýsing.
Heildræn hönnun.

VerkefninHafa samband

Vínrautt og kopar í einu húsi, hör og dagsbirta í öðru. Katrín teiknar skipulag, innréttingar, efnisval og lýsingu, svo hvert rými verður heild sem er sniðin að húsinu og fólkinu sem býr þar.

Verkefni

27 verk í fjórum flokkum, allt frá einu baðherbergi upp í heilt hótel. Hér er úrval úr hverjum flokki.

Öll 27 verkin

Eitt verk í nærmynd

Djúpur vínrauður litur á Arrital eyjunni, flísar frá Agli Árnasyni í gegnum allt húsið og lýsing sem er hönnuð með rýminu.

Innbyggður glerskápur með lýsingu og dökkum viðaráferðum
Arinveggur úr ljósum steini með eldiviðarhólfum og faldri lýsingu
Fataherbergi með lýstum slám og ljósum innréttingum
Baðherbergi með bogadregnum lýstum spegli og steinvaski

Sjá verkefnið

Sturturými með dökkum steinvegg og grænni plöntu

Arrital og Novamobili

Eldhúsinnréttingar frá Arrital, baðinnréttingar frá Arrital undir merkinu Altamarea og fataskápar og húsgögn frá Novamobili fást hjá stúdíóinu.

Ítalskar innréttingar

Dökk eldhúseyja með blómum úr sumarhúsi í Fljótshlíðinni
Sýningarrými stúdíósins við götuna, með eldhúsinnréttingu í dökkum steini og efnissýnishornum

Stúdíóið við Katrínartún 4

Munurinn á tveimur steintegundum sést ekki á skjá, og ekki heldur hvernig matt lakk tekur við dagsbirtu. Í stúdíóinu liggja sýnishorn af borðplötum, framhliðum og efnum, ásamt uppsettri eldhúsinnréttingu, svo hægt sé að handleika það sem til stendur að velja.

Finna tíma í stúdíóinu

Öll verkefnin á einum stað, 27 verk í fjórum flokkum.

27 verk · 4 flokkar

Ýmislegt

Stofa sumarhússins með hörgardínum, hangandi ljósi og leðurstól

Bakgrunnur

Katrín er með BSc í innanhússarkitektúr frá Art Institute of Fort Lauderdale í Flórída, útskrifaðist með láði og hlaut annað sæti í alþjóðlegri hönnunarsamkeppni í Bandaríkjunum. Hún starfaði á arkitektastofum í Fort Lauderdale og í Hollandi áður en hún opnaði eigið stúdíó, og er félagi í FHI, Félagi húsgagna- og innanhússarkitekta.

Um Katrínu

Nokkrar línur duga. Katrín kemur á staðinn, tekur verkefnið út og gerir tilboð í framhaldinu.

Katrínartún 4, 105 Reykjavík · [email protected] · Opnunartími 11:00–17:00 virka daga, eftir samkomulagi

Takk fyrir. Fyrirspurnin er komin til skila og Katrín hefur samband.

Ekki tókst að senda. Hringdu í 663 3414 eða sendu póst á [email protected].